Bókagagnrýni

 

                            Kóralína 

Ég var að lesa bók sem heitir Kóralína. Höfundurinn heitir Neil Gaiman. Bókin fjallar um unga stúlku sem var a flytja í nýtt hús með mömmu sinni og pabba. Þegar þau voru flutt inn bað pabbi hennar Kóralínu að telja gluggana og fleira. Húsið var mjög gamalt, þau áttu ekki allt húsið því það var of stórt fyrir þau. Þau áttu bara hluta af húsinu. Þau sem áttu húsið með þeim hétu, fröken Jónka og fröken Frökk en þau bjuggu á jarðhæð, í íbúðinni fyrir neðan Kóralínu. Þær voru báðar gamlar og áttu nokkra aldraða terríer-hunda sem hétu nöfnum eins og Hagbarður, Andrés og Jóakim. Í fyrsta sinn sem Kóralína hitti þær sagði fröken Jónka henni að hún og fröken Frökk voru leikkonur. Þegar hún var búinn að hitta alla sem bjuggu með henni fór hún aftur inn í húsið. Hún fór og skoðaði sig um og svo kom hún auga á litla dyr sem var á veggnum. Hana langaði svo mikið að sjá hvað var fyrir bakvið þessa hurð, en mamma hennar vildi ekki leifa það. Kóralína var búinn að suða og suða í mömmu sína til að opna hurðina og þá var mamma hennar komin með nóg af suðinu svo hún fór og náði í likilinn og opnaði dyrnar. Það var bara múrveggur. Það var komin nótt og allir voru farnir að sofa nema Kóralína, hún fór niður til að kíkja á þessa hurð, hún náði í likilinn og opnaði dyrnar, múrveggurinn var ekki lengur þarna. Hún fór og skreið í gegnum þessa litlu hurð. Þegar hún var komin í gegnum var hún komin í alveg eins hús og hennar, bara í öðrum heimi. Og þessi heimur sem hún var í var erfit að losna úr. Mér fannst þessi bók mjög skemmtileg og ég er mjög hrifin af hugmyndini sem var í þessari bók. Þetta er spennandi bók um tvo heima og það er spennandi að vita hvað gerist.  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Þorbjörg Þorbergsdóttir

Höfundur

Þorbjörg Þorbergsdóttir
Þorbjörg Þorbergsdóttir
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband